,,Þetta var kærkomið og fyllilega verðskuldað," sagði Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis eftir 4-1 sigur á Grindavík í kvöld.
Grindvíkingar voru 1-0 yfir í leikhléi en þrátt fyrir það var Ólafur nokkuð sáttur með fyrri hálfleikinn.
,,Miðað við spilamennskuna í fyrri hálfleik hafði ég ekki stórar áhyggjur. Við þurftum aðeins að laga nokkra hluti hjá okkur til að reka endahnútinn á sóknirnar og það tókst í síðari hálfleik."
Ólafur hefur mætt vígalegur í viðtöl að undanförnu með sár á enninu en sárið er núna búið að gróa.
,,Þetta var smá vinnuslys. Þetta var smá skráma enda er hún farinn," sagði Ólafur að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























