„Þetta var virkilega góður sigur og við vorum að spila virkilega vel á tímabili," sagði sóknarmaðurinn Ólafur Hrannar Kristjánsson eftir að Leiknir vann 5-1 sigur á Þrótti í 1. deildinni í kvöld.
„Það verður að viðurkennast að þegar þeir minnkuðu muninn í 3-1 fékk maður Þórs-tilfinninguna í magann en eftir að við skoruðum fjórða markið var þetta aldrei spurning," sagði Ólafur og vitnaði í þegar Leiknir tapaði niður forystunni í leik gegn Þór fyrir tveimur árum.
Leiknir var að vinna sinn þriðja leik í röð eftir að hafa farið í gegnum alla fyrri umferðina án sigurs. „Sóknarspilið er að verða miklu betra, kantmennirnir að komast í gang og miðjan að spila boltanum hratt á milli sín," sagði Ólafur.
Þórir Guðjónsson var að leika sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Leikni í sumar en hann skoraði tvö af mörkunum og átti frábæran leik. „Það höfðu allir trú á því að þetta væri frábær leikmaður sem við vorum að fá til okkar, leikmaður sem gæti skipt sköpum fyrir okkur í þessari baráttu sem við erum í."
Zoran Miljkovic hefur náð í níu stig úr fjórum leikjum síðan hann tók við. „Það er serbneskur agi sem er kominn inn í félagið. Hann er að koma með miklar breytingar, mikil taktík og mikið skipulag sem fylgir honum. Við erum allir ánægðir með hvernig málin eru að þróast," sagði Ólafur sem skoraði eitt af mörkum Leiknis í kvöld.
Viðtalið við Ólaf má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















