Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
   mið 03. ágúst 2011 22:08
Arnar Daði Arnarsson
Matthías: Kristján lét okkur heyra það í hálfleik
Matthías Guðmundsson skoraði jöfnunarmark Vals á 52.mínútu gegn Grindavík og jafnframt síðasta mark leiksins. Lokatölur á Vodafone-vellinum í kvöld, 1-1. Matthías var að vonum hundsvekktur með að fá einungis eitt stig úr leiknum í kvöld en þetta eru klárlega tvö töpuð stig í toppbaráttunni fyrir Val.

,,Við ætluðum okkur að vinna þennan leik svo það er augljóst að við erum ekki ánægðir með þetta," sagði Matthías Guðmundsson sem var sammála undirrituðu að á köflum hafi Valur yfirspilað Grindvíkingana en það dugði ekki til, til að innbyrða sigur úr leiknum,

,,Fyrri hálfleikurinn var kannski of hægur, mér fannst við vera með tök á leiknum. Ég var ekki nægilega sáttur með markið sem við fáum á okkur en í seinni hálfleik voru nokkrar góðar sóknir og mér fannst eiginlega bara eitt lið á vellinum þá," sagði Matthías.

,,Kristján lét okkur heyra það í hálfleik og það er það sem þarf eftir svona fyrri hálfleik," sagði Matthías í viðtali við Fótbolti.net eftir leikinn.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
banner