Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   fim 31. maí 2012 21:44
Örvar Arnarsson
Jóhann Birnir: Leikurinn vó á þessu atviki
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Ég vil meina að það hafi verið eitt crucial atriði, leikurinn vó á þessu atviki," sagði Jóhann Birnir Guðmundsson leikmaður Keflvíkinga eftir 4-0 tap liðsins gegn Val í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 4 -  0 Keflavík

,,Við eigum að fá víti, ég er að stinga mér inn fyrir Atla og hann gefur mér nett olnbogaskot inni í teig. Markmaðurinn, ég man ekki hvað hann heitir, bakkar á línunni og er ekki að koma út á móti boltanum. Ég fer út af með sprungna vör og þeir fara upp og skora, 1-0."

Keflvíkingar voru slakir í síðari hálfleik þar sem þeir fengu fjögur mörk á sig.

,,Ég hef enga afsökun fyrir því að við höfum skitið á okkur. Þetta var jafn leikur fram að fyrsta markinu en eftir það brotnum við gjörsmalega."

,,Þetta fór illa og hefði getað farið verr. Það versta við þetta er að við hengdum haus og virtumst gefast upp, það er ekki hægt og ekki ásættanlegt."


Guðmundur Steinarsson fór meiddur út af í hálfleik en þá var staðan markalaus.

,,Gummi er gríðarlega sterkur varnarlega," sagði Jóhann léttur í bragði þegar hann var spurður út í brotthvarf Guðmundar.

,,Við skoruðum ekki og það hefði verið þægilegra upp á að skora en við hefðum þurft að skora fimm til að vinna þá. Varnarlega eigum við ekki að fara í keng þó að Gummi fari út af."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner