Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   fös 22. júní 2012 22:40
Magnús Már Einarsson
Eysteinn Húni: Er í öngum mínum
Eysteinn Húni Hauksson.
Eysteinn Húni Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Þetta er gríðarlega svekkjandi en við fáum eitt stig á Víkingsvelli á móti rótgrónu félagi og erum nálægt því að taka þrjú. Við erum á uppleið," sagði Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Hattar eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Víkingi R. í kvöld.

Ryan Allsop var frábær í marki Hattar en hann varði oft á tíðum frábærlega. Ryan hefur verið mjög öflugur í sumar en óvíst er hvort að hann klári tímabilið með Hetti

,,Vonandi höldum við honum sem lengst. Hann vill fara á reynslu úti sem maður er ekkert hissa á. Ég er að segja honum að það sé betri gluggi að spila hér og standa sig vel en að vera á bekknum í neðri deildunum á Englandi."

Eysteinn var rekinn upp í stúku í síðari hálfleik en hann hafði áður fengið gula spjaldið í fyrri hálfleik hjá Halldóri Breiðfjörð Jóhannssyni dómara leiksins.

,,Mér finnst virkilega leiðinlegt að vera rekinn út af fyrir mjög litlar sakir, fyrir að tala hátt og vera ósáttur, það væri eitthvað að mér ef ég væri ekki ósáttur. Höttur er að fara að spila sinn stærsta leik í sögunni í Vestmannaeyjum á mánudaginn og ég er í banni af því að ég tala of hátt fyrir stillingarnar."

,,Ég gæti ekki verið ósáttari. Ég er í öngum mínum, ég veit ekki hvort ég fái einu sinni að fara til Vestmannaeyja því þá verð ég uppi í stúku. Þetta er áfall. Ég er gráti næst."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar útskýrir Eysteinn meðal annars brottvísun sína betur.
Slapp
banner
banner