,,Þetta er gríðarlega svekkjandi, en við sýndum karakter þrisvar sinnum og komum alltaf til baka. Svo fór þetta ekki alveg nógu vel í vítaspyrnukeppninni en svona er þetta," sagði Elísa Viðarsdóttir fyrirliði ÍBV eftir að liðið tapaði fyrir Breiðablik í æsispennandi leik í Borgunarbikarnum í kvöld. Þrjú rauð spjöld fóru á loft og 8 mörk voru skoruð í venjulegum leik og framlengingu en úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni.
,,Ég hefði viljað vinna leikinn í venjulegum 90 mínútum og líka í vító. En við börðumst vel og hefðum mátt klára færin okkar aðeins betur."
Í seinni hálfleiknum var flugeldasýning í eyjum og flugvélar í listflugi en Pollamótið er nú í eyjum.
,,Ég lét það ekkert á mig fá. Ég reyndi bara að halda áfram án þess að spá í því og held ég hafi gert það eins og allir aðrir inni á vellinum."
,,Við getum ekkert lagst undir sæng og sett sængina yfir höfuðið. Það gengur ekki. Við spiluðum fínan leik í dag og það er bara eitthvað til að byggja ofan á."
Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu að ofan.






















