lau 05. október 2019 17:24
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Klopp: Hvernig fékk Choudhury bara gult spjald?
Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp stýrði sínum mönnum í Liverpool til sigurs gegn Leicester á Anfield í dag. Sigurmarkið skoraði James Milner úr vítaspyrnu í uppbótartíma, lokatölur 2-1.

Vítaspyrnan var augljós. Ég er mjög ánægður með hvernig við spiluðum, við náðum í úrslitin sem við vildum, frábærlega gert. Við trúðum því alltaf að við gætum náð í sigurinn og það gerðum við."

Mo Salah gekk haltur af velli undir lok leiksins eftir ljóta tæklingu Hamza Choudhury sem fékk gult spjald, Klopp var spurður hvort það væri allt í lagi með Salah.

„Hvernig getur bara verið allt í lagi með hann eftir þessa tæklingu, hvernig fékk hann bara gult spjald fyrir þetta. Salah haltraði af velli, hann tók hann niður til að stoppa Salah og hvernig hann gerði það er ekki í lagi," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner