Útvarpsþátturinn Fótbolti.net sem var á X-inu 977 milli 12:00 og 14:00 í gær er nú kominn á netið þar sem hægt er að hlaða niður mp3 skrá af honum í heild sinni.
Í gær kom Tómas Ingi Tómasson þjálfari HK í heimsókn og Stefán Logi Magnússon markvörður Lilleström var í símaviðtali. Guðmundur Benediktsson rýndi í lokasprettinn í ensku úrvalsdeildinni, bæði á toppi og botni deildarinnar auk þess sem að hann valdi úrvalslið deildarinnar.

Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þætti laugardagsins hér á Fótbolta.net.
Guðmundur Benediktsson (Íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport), Tómas Ingi Tómasson (Þjálfari HK), Stefán Logi Magnússon (Markvörður Lilleström)
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.