Hvert fer Salah? - Wharton vill Meistaradeild - Ederson til Liverpool eða Barca - Arsenal og Real berjast um Yildiz
   fös 01. ágúst 2025 17:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Talsverður vindur og mikil ölduhæð í kortunum fyrir Þjóðhátíðarleikinn
Úr leik ÍBV og KR 2012.
Úr leik ÍBV og KR 2012.
Mynd: Reynir Pálsson
Það verður talsverður vindur í Vestmannaeyjum á morgun þegar leikur ÍBV og KR fer fram á Hásteinsvelli.

Um Þjóðhátíðarleik er að ræða þar sem Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er haldin þessa helgina, eins og alla jafna um Verslunarmannahelgi.

Samkvæmt veðurspá á blika.is verður vindur upp á 15-16 m/s á meðan leik stendur. Leikurinn hefst klukkan 14:00.

Inn á heimasíðu Herjólfs, herfjolfur.is, segir að ölduhæðin á morgun verði 3,6m og vindhraðinn 17m/s.

Um mikilvægan leik í neðri hluta Bestu deildarinnar er að ræða, eitt stig skilur liðin að fyrir leikinn.
Útvarpsþátturinn - Verslunarmannahelgin með Túfa
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 22 12 6 4 47 - 27 +20 42
2.    Valur 22 12 4 6 53 - 35 +18 40
3.    Stjarnan 22 12 4 6 43 - 35 +8 40
4.    Breiðablik 22 9 7 6 37 - 35 +2 34
5.    FH 22 8 6 8 41 - 35 +6 30
6.    Fram 22 8 5 9 32 - 31 +1 29
7.    ÍBV 22 8 5 9 24 - 28 -4 29
8.    KA 22 8 5 9 29 - 39 -10 29
9.    Vestri 22 8 3 11 23 - 28 -5 27
10.    KR 22 6 6 10 42 - 51 -9 24
11.    ÍA 22 7 1 14 26 - 43 -17 22
12.    Afturelding 22 5 6 11 29 - 39 -10 21
Athugasemdir
banner