Burnley, sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni, eru að sækja portúgalska miðjumanninn Florentino Luis frá Benfica.
Hann var að mæta í læknisskoðun í Manchester og en búið er að ganga frá öllum smáatriðum.
Hann var að mæta í læknisskoðun í Manchester og en búið er að ganga frá öllum smáatriðum.
Það er ekki langt í að þessi skipti verði staðfest.
Roma og Marseille sýndu einnig áhuga en hann er á leiðinni í enska boltann.
Hann kemur fyrst á láni og svo þarf Burnley að kaupa hann næsta sumar. Alls mun hann kosta um 23 milljónir punda. Breska ríkisútvarpið segir að hann gæti orðið dýrasti leikmaður í sögu Burnley.
Athugasemdir