Sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak er nú einu skrefi frá því að semja við Englandsmeistara Liverpool eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu í dag.
Liverpool og Newcastle sömdu um 125 milljóna kaupverð í nótt og ferðaðist Isak síðan til Liverpool-borgar í morgun til að gangast undir læknisskoðun.
Hann fór í fyrri hlutann í morgun og var nú rétt í þessu að ljúka síðari hlutanum.
Næst á dagskrá hjá Isak er að skrifa undir sex ára samning og verður hann síðan kynntur í kjölfarið.
Isak verður dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og bætir met Liverpool frá því fyrr í sumar er það keypti Florian Wirtz frá Bayer Leverkusen fyrir 116 milljónir.
Athugasemdir