Haukur Páll Sigurðsson leikmaður Vals var í viðtali hjá Fótbolta.net eftir sigurinn í Lengjubikarnum í dag.
Hann hefur unnið ófáa titla á ferlinum en hversu marga?
„Með þessu og Reykjavíkurmóti, ég þarf smá tíma, án þess að vera eitthvað hrokafullur. Ég var að skoða á bikarnum áðan að þetta er þriðji Lengjubikar titillinn minn," sagði Haukur Páll.
„Það er gaman að vinna, þetta er bikar en frammistaðan var köflótt, eitthvað sem við getum lagað. Fínir spilkaflar inn á milli, vorum þokkalegir á móti mjög góðu liði."
Hann er vanur að spila á miðjunni en kom inn á í hálfleik fyrir Hólmar Örn Eyjólfsson og spilaði í miðverði.
„Skiptir mig engu máli hvar ég spila ef ég spila. Arnar sér mig leysa þessa stöðu. Það skiptir ekki máli hvort það sé miðvörður eða miðja, ég get spilað frammi líka, það er ekkert mál," sagði Haukur Páll og brosti.
Haukur hefur æft vel í vetur.
„Ég held að ég sé í betra standi núna en á sama tíma í fyrra. Mér finnst ég vera búinn að leggja mikið á mig í vetur. Það er nýtt þjálfarateymi, nýjar áherslur, fullt af frábærum leikmönnum. Stór og góður hópur þar sem allir vilja spila. Maður er að eldast og þá þarf maður að æfa meira og ég er búinn að leggja mikið á mig," sagði Haukur Páll.