
Frederik Schram fékk á sig þrjú mörk í kvöld þegar Ísland tapaði 2-3 fyrir Noregi á Laugardalsvelli. Hann gerði slæm mistök í öðru marki Noregs og virkaði óöruggur í leiknum.
Lestu um leikinn: Ísland 2 - 3 Noregur
„Mér líður augljóslega ekki sem best eftir þennan leik. Annað mark Noregs var klárlega mín mistök. Ég átti að leysa þetta öðruvísi en stundum er þetta svona," sagði Frederik.
„Það var annars frábær tilfinning að spila fyrir framan fólkið á Laugardalsvelli. En þetta fór ekki eins og ég hafði vonað. Ég er mjög leiður yfir mistökunum en get ekki breytt neinu og ég ætla að koma sterkari til baka."
Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir