Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   fös 24. apríl 2026 00:18
Kári Snorrason
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Elías Már Ómarsson - Víkingur
Fagnar hér öðru marki sínu.
Fagnar hér öðru marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög ánægður. Mikilvæg þrjú stig gegn góðu Stjörnuliði. Við getum verið sáttir með þessi þrjú stig,“ sagði Elías Már Ómarsson eftir 3-2 sigur Víkings gegn Stjörnunni.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Stjarnan

Elías skoraði fyrstu tvö mörk Víkings í kvöld og er nú kominn með þrjú mörk í deildinni eftir fyrstu þrjá leikina. Hann er leikmaður umferðarinnar.

Þú ert heldur betur kominn í stand.
„Já, ég ætla rétt að vona það. Það er mikilvægt fyrir framherja að skora mörk. Það er mikilvægt fyrir liðið að skora. Við erum með það flott lið, fullt af gaurum sem geta skorað, búið til færi fyrir mann. Það er geggjað að vera í þessu liði.“

Mörkin sem Elías skoraði eru hér að neðan en viðtalið við hann má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.



Sterkustu leikmenn:
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Slapp
banner
banner