Logi Tómasson lék allan leikinn í markalausu jafntefli hjá Samsunspor gegn Trabzonspor í 8-liða úrslitum tyrkneska bikarsins.
Fyrri hálfleikurinn var jafn en framherjinn Cherif Ndiaye var rekinn af velli í liði heimamanna sem þurftu að spila manni færri síðustu 25 mínútur leiksins og alla framlenginguna.
Loga og félögum tókst að halda hreinu þrátt fyrir að vera manni færri og knýja leikinn í vítaspyrnukeppni. Þar klúðruðu liðsfélagar Loga fyrstu þremur spyrnunum gegn André Onana, sem leikur hjá Trabzonspor á láni frá Manchester United, áður en Logi steig á punktinn og skoraði.
Það reyndist eina mark Samsunspor í vítakeppninni svo Trabzonspor fer áfram í undanúrslit bikarsins. Logi og félagar eru úr leik og því svo gott sem búnir að missa af evrópusæti fyrir næstu leiktíð. Þeir eiga enn veika möguleika á að komast í Sambandsdeildina með því að sigra síðustu fjóra leiki deildartímabilsins og treysta á hagstæð úrslit annars staðar.
Þá komu nokkur Íslendingalið við sögu í danska boltanum þar sem Daníel Leó Grétarsson varð fyrir því óláni að ráða úrslitum með sjálfsmarki í spennandi Íslendingaslag.
Daníel Leó lék allan leikinn í hjarta varnarinnar er Sönderjyske tapaði á heimavelli gegn Midtjylland, sem er með Elías Rafn Ólafsson á milli stanganna.
Midtjylland er í harðri titilbaráttu við AGF og eru liðin jöfn á stigum eftir leiki dagsins, með 57 stig eftir 28 umferðir. Hinn 18 ára gamli Tómas Óli Kristjánsson kom inn af bekknum í jafntefli hjá AGF gegn Nordsjælland í dag.
19 ára Daníel Ingi Jóhannesson var ónotaður varamaður í liði Nordsjælland, sem er í harðri baráttu um þriðja sætið.
Í fallbaráttunni var Daníel Freyr Kristjánsson í byrjunarliði Fredericia sem gerði jafntefli við Randers. Fredericia er sem stendur í öruggu sæti á markatölu í erfiðri fallbaráttu.
Í næstefstu deild lék Nóel Atli Arnórsson síðasta hálftímann í dramatískum sigri Álaborgar gegn B.93. Álaborg siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar.
Í efstu deild í Hollandi voru Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson báðir í byrjunarliði Go Ahead Eagles sem gerði markalaust jafntefli við AZ Alkmaar. Eagles eru sjö stigum frá evrópusæti með aðeins þrjá leiki eftir óspilaða.
Að lokum fóru leikir fram í efstu deild sænska boltans þar sem nokkrir Íslendingar komu við sögu.
Daníel Tristan Guðjohnsen og Arnór Sigurðsson komu báðir inn af bekknum er Malmö tapaði á heimavelli og þá lék Róbert Frosti Þorkelsson allan tímann í markalausu jafntefli GAIS.
Malmö er þá með sjö stig eftir fjórar umferðir á meðan GAIS er aðeins með eitt stig.
Í kvennaboltanum bar Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliðabandið í 2-2 jafntefli hjá Al-Qadsiya gegn Al-Ahli í Sádi-Arabíu.
Samsunspor 0 - 0 Trabzonspor
1-3 í vítaspyrnukeppni
Sonderjyske 1 - 2 Midtjylland
0-1 E. Chilufya ('24)
1-1 M. Hoppe ('40)
1-2 Daníel Leó Grétarsson, sjálfsmark ('49)
Nordsjælland 1 - 1 Aarhus GF
Randers 2 - 2 Fredericia
AaB 3 - 2 B.93
G.A. Eagles 0 - 0 AZ Alkmaar
Malmö 2 - 3 Sirius
GAIS 0 - 0 Mjallby
Al-Qadsiya 2 - 2 Al-Ahli




