„Finnst undirbúningstímabilið skemmtilegt"
Í komandi viku fer Reykjavíkurmótið af stað og einnig Fótbolta.net mótið. Freyr Alexandersson, þjálfari ríkjandi Reykjavíkurmeistara í Leikni, var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag.
Þess má geta að Leiknir mætir Fram á fimmtudag en ekki KR eins og talað er um í upptökunni en KSÍ breytti upphaflegu leikjaplani. Freyr talaði meðal annars um þá gjörbreytingu sem orðið hefur á Framliðinu eftir komu Bjarna Guðjónssonar.

„Ég er ekkert að ljúga þegar ég segi að mér finnst undirbúningstímabilið mjög skemmtilegt. Það er leiðinlegt fyrir áhugamanninn að fylgjast með sex mánaða undirbúningstímabili en fyrir þjálfarann er hægt að gera ótrúlega margt. Þú getur til dæmis umturnað leikmanni líkamlega. Mér finnst það mjög skemmtilegt," segir Freyr.
Gámurinn kemur í apríl
Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan en þar talar Freyr meðal annars um af hverju leikmannamarkaðurinn hafi verið svona rólegur það sem af er.
„Ég held að það sé ljóst að það verði örlitlar breytingar hjá innlendum leikmönnum en svo kemur gámurinn í apríl. Það lítur þannig út að það verði margir erlendir leikmenn sem komi í deildina," segir Freyr.
Athugasemdir