Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttulandsleikir: Danir unnu - David í stuði
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru nokkrir æfingalandsleikir fram í gær þar sem Danmörk lagði Norður-Írland að velli og Bandaríkin töpuðu gegn Tyrklandi.

Pierre-Emile Höjbjerg gerði sjálfsmark til að koma Norður-Írum yfir en Gustav Isaksen og Christian Eriksen snéru stöðunni við svo lokatölur urðu 2-1 fyrir Dani.

Bandaríkjamenn tóku þá forystuna strax á fyrstu mínútu gegn Tyrklandi, en Arda Güler og Kerem Aktürkoglu svöruðu með sitthvoru markinu fyrir leikhlé og urðu lokatölur 1-2 eftir nokkuð jafnan og spennandi slag.

Jonathan David skoraði þá fyrstu tvö mörkin í þægilegum sigri hjá Kanada gegn Úkraínu, en úrvalsdeildarvarnarmennirnir Illya Zabarnyi og Oleksandr Zinchenko minnkuðu muninn með sitthvoru markinu. Lokatölur 4-2 fyrir Kanada.

Sviss lagði þá Mexíkó að velli í leik þar sem Breel Embolo, Zeki Amdouni, Dan Ndoye og Santi Giménez komust meðal annars á blað á meðan Grikkland fór illa með Slóvakíu og sigraði 4-1.

Nýja-Sjáland lagði Fílabeinsströndina að velli í lokaleik gærkvöldsins.

Danmörk 2 - 1 N-Írland
0-1 Pierre-Emile Hojbjerg ('6, sjálfsmark)
1-1 Gustav Isaksen ('45+2)
2-1 Christian Eriksen ('67)

Bandaríkin 1 - 2 Tyrkland
1-0 Jack McGlynn ('1)
1-1 Arda Guler ('24)
1-2 Kerem Akturkoglu ('27)

Kanada 4 - 2 Úkraína
1-0 Jonathan David ('4)
2-0 Jonathan David ('24)
3-0 Promise David ('31)
4-0 Tajon Buchanan ('81)
4-1 Illya Zabarnyi ('89)
4-2 Oleksandr Zinchenko ('92, víti)

Mexíkó 2 - 4 Sviss
0-1 Breel Embolo ('20)
1-1 Santi Gimenez ('51)
1-2 Zeki Amdouni ('64)
1-3 Dan Ndoye ('71)
2-3 Angel Sepulveda ('75)
2-4 Fabian Rieder ('90)

Grikkland 4 - 1 Slóvakía
1-0 Giannis Konstantelias ('16)
1-1 David Hancko ('34)
2-1 Vangelis Pavlidis ('66)
3-1 Anastasios Douvikas ('88)
4-1 David Hrncar ('92, sjálfsmark)

Nýja-Sjáland 1 - 0 Fílabeinsströndin
1-0 Elijah Just ('41)

Lettland 0 - 0 Aserbaídsjan

Tsjad 0 - 0 Kenía

Athugasemdir
banner