Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mán 04. desember 2023 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ákæra Man City fyrir hegðun leikmanna í gær
Pep Guardiola, stjóri Man City.
Pep Guardiola, stjóri Man City.
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið hefur ákært Manchester City eftir 3-3 jafntefli liðsins gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Leikmenn City brugðust illa við skrítnum dómi hjá Simon Hooper seint í leiknum í gær.

Staðan var 3-3 og komnar þrjár mínútur fram yfir venjulegan leiktíma er Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City, fékk boltann við miðjubogann. Það var augljóslega brotið á Haaland en hann hélt boltanum og beitti Hooper, dómari leiksins, hagnaðareglunni.

Haaland kom síðan með langan bolta inn fyrir vörn Tottenham þar sem Jack Grealish var sloppinn í gegn. Hooper hætti skyndilega við að beita hagnaðarreglunni og dæmdi á brotið.

Haaland og aðrir leikmenn City voru vægast sagt brjálaðir, og það skiljanlega.

Haaland öskraði á Hooper og birti eftir leikinn tíst með myndbandi af atvikinu þar sem hann skrifaði 'wtf' eða 'hver fjandinn'.

City á núna yfir höfði sér refsingu út af hegðun leikmanna sinna í leiknum í gær.
Athugasemdir
banner
banner