Arsenal hyggst gera annað tilboð í Kóreumanninn - Al-Hilal undirbýr tilboð í Bruno Fernandes - Tah undir smásjá Newcastle
   mið 07. maí 2025 17:30
Elvar Geir Magnússon
Willumsson skoraði fyrir U16 gegn Tékklandi
Byrjunarlið U16 liðsins í dag.
Byrjunarlið U16 liðsins í dag.
Mynd: KSÍ
U16 landslið karla gerði 1-1 jafntefli við Tékkland í síðasta leik liðsins á sérstöku þróunarmóti, UEFA Development Tournament.

Þór Andersen Willumsson skoraði mark Íslands. Þar sem leikurinn endaði með jafntefli þá var gripið til vítaspyrnukeppni sem Tékkland vann 3-2.

Úrslitin þýða að Ísland endaði í þriðja sæti mótsins sem leikið var í Svíþjóð.

Þór Willumsson, sem er fæddur 2009 og er hjá Breiðabliki, er yngsti sonur Willums Þórs Þórssonar en bræður hans Willum Þór og Brynjólfur eru atvinnumenn og landsliðsmenn.
Mynd: KSÍ

Athugasemdir
banner
banner