Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 05. mars 2023 08:20
Ívan Guðjón Baldursson
Reus vill vera áfram hjá Dortmund
Mynd: EPA

Marco Reus, 33 ára sóknartengiliður Borussia Dortmund, vill spila áfram fyrir félagið á næstu leiktíð.


Samningur Reus við Dortmund rennur út í sumar en þá verður leikmaðurinn orðinn 34 ára.

Hann á í heildina 159 mörk og 120 stoðsendingar í 375 leikjum fyrir félagið og hefur verið öflugur á yfirstandandi leiktíð. Reus hefur skorað 6 mörk og gefið 7 stoðsendingar í 19 leikjum á tímabilinu.

„Ég get ekki ímyndað mér sjálfan mig á öðrum stað en hjá Borussia Dortmund," sagði Reus. „Ég vona að ég fái nýjan samning."

Samningsviðræður á milli Reus og Dortmund eru í gangi, en Manchester United var orðað við leikmanninn í janúarglugganum.

Reus skoraði í 2-1 sigri gegn RB Leipzig í gær sem var áttundi sigur Dortmund í röð í þýsku deildinni og sá tíundi í öllum keppnum. Reus varð um leið næstmarkahæsti leikmaður í sögu félagsins.


Athugasemdir
banner
banner