Leao orðaður við Liverpool - Bayern lækkar verðmiðann á Coman - Nunez vildi fara í janúar
banner
   mið 05. mars 2025 15:00
Elvar Geir Magnússon
Sonur Emile Heskey skaut unglingaliði City áfram
Reigan Heskey skoraði glæsilegt mark.
Reigan Heskey skoraði glæsilegt mark.
Mynd: Manchester City
Manchester City er komið áfram í 8-liða úrslit í Evrópukeppni unglingaliða eftir 2-1 útisigur gegn þýska liðinu Hoffenheim.

Reigan Heskey, sem varð 17 ára í janúar, vakti sérstaklega mikla athygli í leiknum. Hann lék á kantinum, er með spennandi tækni og hættulegur einn gegn einum.

Hann skoraði virkilega flott mark og kom Manchester City í 2-1 en markið má sjá hér að neðan.

Reigan er sonur Emile Heskey sem lék meðal annars með Leicester, Liverpool og enska landsliðinu. Eldri bróðir hans, Jaden Heskey, er 19 ára og er einnig í unglingaliði Manchester City en hann lék á miðsvæðinu í leiknum.

Auk City hafa RB Salzburg, Barcelona og Trabzonspor tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar en þar etja U19 lið kappi.



Athugasemdir
banner
banner