
Birkir Bjarnason átti flottan leik fyrir Ísland í kvöld þegar okkar menn sýndu sparihliðarnar með 2-0 sigri gegn Úkraínu.
Lestu um leikinn: Ísland 2 - 0 Úkraína
„Við erum enn í bullandi séns. Það var hrikalega mikilvægt að vinna í kvöld," sagði Birkir eftir leikinn.
Íslenska liðið sýndi magnaða frammistöðu í seinni hálfleik.
„Mér fannst fyrri hálfleikur mjög fínn líka. Við héldum þeim mjög vel niðri. Í hálfleik töluðum við um að halda þessu áfram, reyna að halda boltanum betur og vera kröftugri fram á við. Við gerðum það og það sáu það allir hvernig endaði."
Birkir segir að það hafi gefið Íslandi mikið að skora í upphafi seinni hálfleiks.
„Króatar eiga erfiða leiki eftir. Við eigum mjög erfiðan útileik næst (gegn Tyrklandi). Við verðum að halda áfram á þessu róli. Þá held ég að það séu mjög góðir möguleikar," sagði Birkir en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir