Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
   þri 05. desember 2023 21:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Hwang hetja Úlfana í sigri á Burnley

Wolves 1 - 0 Burnley
1-0 Hee-Chan Hwang ('42 )


Hwang Hee-Chan var hetja Wolves þegar liðið lagði Burnley í úrvalsdeildinni í kvöld.

Eina mark leiksins kom undir lok fyrri hálfleiks. Leikmenn Úlfana pressuðu Burnley hátt sem reyndu að spila boltanum út úr vörninni.

Það tókst ekki betur en svo að Úlfarnir unnu boltann og boltinn barst að lokum til Hwang sem skoraði. Jóhann Berg Guðmundsson byrjaði á varamannabekk Burnley en kom inn á í fyrri hálfleik fyrir Luca Koleosho.

Leikmenn Burnley reyndu hvað þeir gátu að ná í jöfnunarmark en allt kom fyrir ekki og sigur Wolves staðreynd.

Þessi úrslit þýða að Burnley mistókst að komast upp fyrir Luton, upp úr fallsæti en Luton er þessa stundina að tapa gegn Arsenal.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 35 25 7 3 81 35 +46 82
2 Arsenal 35 18 13 4 64 31 +33 67
3 Man City 35 19 7 9 67 43 +24 64
4 Newcastle 35 19 6 10 66 45 +21 63
5 Chelsea 35 18 9 8 62 41 +21 63
6 Nott. Forest 35 18 7 10 54 42 +12 61
7 Aston Villa 35 17 9 9 55 49 +6 60
8 Bournemouth 35 14 11 10 55 42 +13 53
9 Brentford 35 15 7 13 62 53 +9 52
10 Brighton 35 13 13 9 57 56 +1 52
11 Fulham 35 14 9 12 50 47 +3 51
12 Crystal Palace 35 11 13 11 44 48 -4 46
13 Wolves 35 12 5 18 51 62 -11 41
14 Everton 35 8 15 12 36 43 -7 39
15 Man Utd 35 10 9 16 42 51 -9 39
16 Tottenham 35 11 5 19 63 57 +6 38
17 West Ham 35 9 10 16 40 59 -19 37
18 Ipswich Town 35 4 10 21 35 76 -41 22
19 Leicester 35 5 6 24 29 76 -47 21
20 Southampton 35 2 5 28 25 82 -57 11
Athugasemdir
banner