Liverpool undirbýr tilboð í Kerkez - West Ham reynir að fá Gomes - Man Utd skoðar markverði
   fim 06. mars 2025 14:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neymar snýr aftur í brasilíska landsliðið
Mynd: EPA
Brasilíski snillingurinn Neymar er mættur aftur í landsliðið eftir um eins og hálfs árs fjarveru vegna meiðsla.

Neymar, sem er 33 ára og spilar í dag með Santos í heimalandinu, er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 79 mörk skoruð í 128 leikjum.

Framundan hjá landsliðinu eru leikir gegn Argentínu og Kólumbíu í forkeppni HM 2026.

Hópurinn er mjög öflugur og má sjá hann hér að neðan. Brasilía er í ágætri stöðu eftir tólf leiki í keppninni. Liðið er reyndar einungis með 18 stig og situr í 5. sæti Suður-Ameríkuriðilsins en efstu sex liðin í riðlinum fara beint á HM og fimm stig eru niður í 7. sætið.


Athugasemdir
banner
banner
banner