Elvar Geir Magnússon skrifar frá Bern
,,Það er frábært að skora þrjú mörk í svona mikilvægum leik," sagði Jóhann Berg Guðmundsson við Fótbolta.net eftir 4-4 jafntefli gegn Sviss í kvöld.
Jóhann Berg var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti í undankeppninni og stimplaði sig inn með því að skora stórglæsilega þrennu.
,,Ég hlýt að fá að starta næsta leik. Það er gaman að fá að hjálpa liðinu. Ég spilaði síðasta æfingaleik og spilaði vel þar og hélt því áfram í kvöld."
Jóhann Berg skoraði mörkin með glæsilegum skotum. ,,Þessi þrenna var stórglæsileg og ég held að ég hafi ekki séð flottari þrennu en þetta þó að ég segi sjálfur frá," sagði Jóhann sem hefur verið í miklu stuði að undanförn.
,,Ég er búinn að fá mikinn spiltíma hjá AZ. Ég er í liðinu alla leiki og er að spila 90 mínútur. Það kemur leikæfing og sjálfstraust með því og það sýndi sig í kvöld."
Jóhann Berg skoraði síðast þrennu í yngri flokkunum. ,,Það var á yngra ári í fjórða flokki en það var kominn tími á þetta," sagði Jóhann.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir





















