Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
   fös 07. mars 2025 08:32
Elvar Geir Magnússon
Mourinho þóttist sofna á fréttamannafundi
Mourinho varð þreyttur á að hlusta á spurninguna frá tyrkneskum blaðamanni.
Mourinho varð þreyttur á að hlusta á spurninguna frá tyrkneskum blaðamanni.
Mynd: Skjáskot
Jose Mourinho fór á kostum á fréttamannafundi eftir að lið hans, Fenerbahce, tapaði 1-3 í fyrri leik sínum gegn Rangers frá Glasgow í Evrópudeildinni.

Þegar tyrkneskur blaðamaður bar upp gríðarlega langa spurningu þóttist Mourinho hreinlega sofna. Spurningin langa var svo þýdd yfir á ensku og var þetta aðeins of mikið fyrir portúgalska stjórann.

„Ohh, þetta er of mikið fyrir höfuðið á mér. Ég er þreyttur maður. Eftir 90 mínútna leik er ég of þreyttur til að hlusta á allt þetta," sagði Mourinho síðan.

Fenerbahce er í erfiðri stöðu eftir úrslitin í gær en Mourinho varar Skotana við: „Slakið þið á, þessu er ekki lokið," sagði hann við skoska fjölmiðlamenn.


Athugasemdir
banner
banner