Birkir hinkrar eftir æfingu Íslands í morgun ásamt nafna sínum Birki Má Sævarssyni og Lars Lagerback þjálfara.
Birkir Bjarnason segir að umhverfið í Annecy sé mjög líkt því sem hann þekki frá Ítalíu og Sviss þar sem hann hefur leikið.
„Það er mjög fallegt hérna og ekki annað hægt en að líða vel," segir Birkir.
„Tilfinningin er frábær og allir mjög ánægðir með þetta. Maður er fyrst núna að gera sér grein fyrir því að þetta sé að byrja."
Birkir var hvíldur í leiknum gegn Liechtenstein en segir að standið á sér sé gott.
„Mér líður ágætlega. Sjáum hvernig ég verð í dag," segir Birkir sem æfði í dag.
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir





















