Kantmaðurinn Serginho hefur verið að gera flotta hluti með Viborg í efstu deild danska boltans og vakið áhuga ýmissa félagsliða innan og utan Evrópu.
Serginho er með eitt ár eftir af samningi sínum við Viborg og vill skipta yfir til stærra félags, en hafnaði þó risastóru samningstilboði frá Al-Wasl í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkings R. og Breiðabliks, stýrði Al-Wasl þar til fyrir skömmu þegar hann ákvað að hætta þrátt fyrir að hafa náð flottum árangri.
Viborg var búið að samþykkja 4 milljón evru tilboð frá Al-Wasl í leikmanninn, en Serginho hafnaði samningstilboðinu.
Serginho er staðráðinn í því að vera áfram í Evrópu, en hann er 24 ára gamall og með einn landsleik að baki fyrir Grænhöfðaeyjar.
Athugasemdir