fim 09. mars 2023 18:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cooper: Ég elska þetta ferðalag
Mynd: EPA

Það er orðið ansi heitt undir Antonio Conte eftir að Tottenham féll úr leik í Meistaradeildinni í gær.


Steve Cooper stjóri Nottingham Forest er einn þeirra sem hefur verið orðaður við Tottenham en hann vildi ekkert ræða það við fjölmiðla.

„Þetta kemur okkur ekkert við. Ég sagði það í síðustu viku, ég vil ekki og þarf ekki að segja það aftur. Aðalatriðið fyrir mér er leikurinn, strákarnir sem ég vinn með á hverjum degi og ég er að reyna mitt besta," sagði Cooper.

„Ég elska þetta ferðalag með leikmönnunum, það er krefjandi en skemmtilegt. Allt fyrir utan okkar búbblu kemur okkur ekki við."

Forest heimsækir einmitt Tottenham um helgina í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner