Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   lau 09. maí 2026 21:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Orri skoraði í dramatísku jafntefli
Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson var á skotskónum þegar Real Sociedad fékk Real Betis í heimsókn í spænsku deildinni í kvöld.

Orri var nálægt því að koma Sociedad yfir en Alvaro Valles i marki Betis varði skalla frá honum. Antony sá til þess að Betis var með 1-0 forystu í hálfleik og Abde Ezzalzouli bætti öðru markinu við strax í upphafi seinni hálfleiks.

Orri minnkaði muninn þegar hann skoraði með skoti af stuttu færi um tíu mínútum fyrir leikslok. Stuttu síðar fékk hann gult spjald sem þýðir að hann er kominn í bann og verður ekki með liðinu gegn Girona á útivelli á fimmtudaginn.

Sociedad fékk vítaspyrnu í lokin og Mikel Oyarzabal skoraði og bjargaði stigi fyrir liðið. Sociedad er án sigurs í síðustu fimm leikjum. Liðið er í 8. sæti með 44 stig. Betis styrkti stöðu sína í Meistaradeildarbarátunni en liðið er í 5. sæti með 56 stig, sex stigum á undan Celta Vigo þegar þrjár umferðir eru eftir.

Atletico Madrid tapaði gegn Celta Vigo fyrr í dag en Atletico hefur tryggt sér Meistaradeildarsætið. Sevilla vann mikilvægan sigur í fallbaráttunni og Elche og Alaves gerðu markalaust jafntefli í fallbaráttunni.

Sevilla 2 - 1 Espanyol
0-1 Tyrhys Dolan ('56 )
1-1 Andres Castrin ('82 )
2-1 Akor Adams ('90 )

Elche 1 - 1 Alaves
0-1 Toni Martinez ('51 , víti)
1-1 Alvaro Rodriguez ('72 )

Atletico Madrid 0 - 1 Celta
0-1 Borja Iglesias ('62 )

Real Sociedad 2 - 2 Betis
0-1 Antony ('39 )
0-2 Abde Ezzalzouli ('47 )
1-2 Orri Oskarsson ('79 )
2-2 Mikel Oyarzabal ('90 , víti)
Rautt spjald: Aitor Ruibal, Betis ('90)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 34 29 1 4 89 31 +58 88
2 Real Madrid 34 24 5 5 70 31 +39 77
3 Villarreal 34 21 5 8 64 39 +25 68
4 Atletico Madrid 35 19 6 10 58 38 +20 63
5 Betis 35 13 15 7 54 43 +11 54
6 Celta 35 13 11 11 49 44 +5 50
7 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
8 Getafe 34 13 5 16 28 36 -8 44
9 Athletic 34 13 5 16 40 50 -10 44
10 Osasuna 35 11 9 15 42 45 -3 42
11 Vallecano 34 10 12 12 35 41 -6 42
12 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
13 Elche 35 9 12 14 46 54 -8 39
14 Valencia 34 10 9 15 37 50 -13 39
15 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
16 Mallorca 34 10 8 16 42 51 -9 38
17 Girona 34 9 11 14 36 51 -15 38
18 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
19 Levante 35 9 9 17 41 57 -16 36
20 Oviedo 34 6 10 18 26 54 -28 28
Slapp
banner
banner