Avni Pepa, fyrirliði ÍBV, var að vonum ánægður eftir 2-0 sigur liðsins gegn Stjörnunni í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Leikurinn var opinn og skemmtilegur en á endanum voru það gestirnir sem nýttu færin sín í Garðabænum og fara því áfram.
Leikurinn var opinn og skemmtilegur en á endanum voru það gestirnir sem nýttu færin sín í Garðabænum og fara því áfram.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 2 ÍBV
„Ég er mjög ánægður, við börðumst og spiluðum mjög vel. Derby átti nokkrar góðar vörslur en við fengum líka nokkur færi þannig mér fannst við eiga skilið að vinna," sagði Pepa eftir leikinn.
Pepa var einnig glaður þegar hann fékk þær fréttir í miðju viðtali að Kósovó hefði fengið þátttökurétt í undankeppni HM 2018 og yrði með Íslandi í riðli. Varnarmaðurinn er landsliðsmaður Kósovó og spilaði í 2-0 sigri liðsins gegn Færeyjum á dögunum, fyrsta formlega landsleik Kósovó.
„Það er skemmtilegt, við eigum eftir að vinna ykkur," sagði Pepa léttur.
„Neinei, þetta verður mjög erfiður riðill en þetta verður skemmtilegt. Ég þekki nokkra leikmenn í íslenska liðinu og það verður gaman að mæta þeim."
Pepa ræddi einnig um vonir Íslands á EM 2016 í sumar, en hann spáir liðinu alla leið í 8-liða úrslit mótsins. Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir























