
Það var kuldalegt í Prag í morgun þegar íslenska kvennalandsliðið æfði á æfingasvæði tékkneska fótboltasambandsins. Ísland leikur mikilvægan leik gegn Tékklandi í undankeppni HM á þriðjudaginn.
„Það er smá kalt en þetta er ekki eitthvað sem maður er ekki vanur," sagði Guðrún Arnardóttir við Fótbolta.net fyrir æfinguna.
Ísland vann 4-0 þegar liðin mættust á Laugardalsvelli á síðasta ári.
„Ég held að þetta verði skemmtilegur og jafn leikur. Við unnum fyrri leikinn hjá þeim stórt en úrslitin endurspegluðu ekki alveg hvernig leikurinn var. Það er alls ekki gefið að úrslitin verði svipuð á þriðjudaginn."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir