Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 16:05
Kári Snorrason
Prestianni í 55 manna forhóp Argentínu - Dybala ekki með
Prestianni lét ófögur orð falla við Vinicius Jr.
Prestianni lét ófögur orð falla við Vinicius Jr.
Mynd: EPA
Gianluca Prestianni er í 55 manna forhópi Argentínu fyrir komandi heimsmeistaramót þrátt fyrir að vera í banni vegna hómófóbískra ummæla.

UEFA setti hann í sex leikja bann fyrir hegðun sína gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í vor. Á dögunum herti FIFA bannið og missir hann af fyrstu tveimur leikjunum verði hann valinn í lokahópinn.

Lionel Messi er einnig í hópnum þrátt fyrir að hafa ekki opinberlega staðfest hvort hann taki þátt á mótinu.

Þá virðist sem svo að landsliðsferli Paulo Dybala sé lokið. Hann er ekki í hópnum og hefur ekki leikið fyrir Argentínu síðan árið 2024.


Slapp
banner