Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   mið 13. janúar 2016 09:00
Magnús Már Einarsson
Byrjunarliðið gegn Finnum: Garðar byrjar - Eiður fyrirliði
Garðar spilar sinn fyrsta landsleik í dag.
Garðar spilar sinn fyrsta landsleik í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerback hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Finnum í æfingaleik í Abu Dhabi klukkan 16:00 í dag en leikurinn verður í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.

Eiður Smári Guðjohnsen verður með fyrirliðabandið og nýliðinn Garðar Bergmann Gunnlaugsson verður í framlínunni.

Gunnleifur Gunnleifsson átti upphaflega að standa á milli stanganna en hann er meiddur og Ingvar Jónsson tekur stöðu hans.

Markvörður
Ingvar Jónsson

Hægri bakvörður
Haukur Heiðar Hauksson

Vinstri bakvörður
Hjörtur Logi Valgarðsson

Miðverðir
Ragnar Sigurðsson og Sölvi Geir Ottesen

Miðjumenn
Eiður Smári Guðjohnsen (fyrirliði) og Rúnar Már Sigurjónsson

Hægri kantmaður
Theodór Elmar Bjarnason

Vinstri kantmaður
Arnór Ingvi Traustason

Framherjar
Garðar Bergmann Gunnlaugsson og Viðar Örn Kjartansson

Leikurinn við Finna er fyrri vináttuleikurinn af tveimur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en íslenska liðið mætir heimamönnum í Dubai á laugardag, og er sá leikur einnig sýndur beint á RÚV.


Athugasemdir
banner
banner