Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 13. desember 2018 09:00
Magnús Már Einarsson
Atli skoraði beint úr horni fyrir unglingalið Norwich
Atli við undirskriftina hjá Norwich í fyrra.
Atli við undirskriftina hjá Norwich í fyrra.
Mynd: .
Atli Barkarson var á skotskónum þegar U18 ára lið Norwich lagði Port Vale 3-2 á útivelli í gær í bikarkeppni unglingaliða á England.

Atli skoraði sigurmarkið á 89. mínútu en það gerði hann með skoti beint úr hornspyrnu.

Hinn 17 ára gamli Atli er á sínu öðru tímabili hjá Norwich en hann kom til félagsins frá Völsungi sumarið 2017.

Atli, sem á leiki að baki með U17 og U19 ára landsliði Íslands, var byrjaður að spila með meistaraflokki Völsungs áður en hann fór út til Norwich.
Athugasemdir
banner