Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. desember 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þjóðsaga að það sé erfitt að fá Íslendinga til Eyja"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV spilar í efstu deild á næstu leiktíð en liðið var í öðru sæti í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð eftir Fram.

Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson er tekinn við sem þjálfari liðsins en hann gerði frábæra hluti með Þrótti Vogum á síðustu leiktíð en hann kom liðinu uppúr 2. deild í næst efstu deild.

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hringdu til Eyja í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn og heyrðu í Daníel Geir Moritz Formanni knattspyrnuráðs ÍBV um breytingarnar á liðinu fyrir komandi tímabil.

„Við heyrðum í nokkrum kostum eftir að Helgi hvarf á braut, það var enginn í heiminum sem vildi þetta jafn mikið og Hermann. Við fórum í viðræður og hann sagði okkur hvað hann vildi gera þá var það eins og okkur langaði að gera. Það er gaman að fá hann heim."

Daníel er hvergi nærri hættur á leikmannamarkaðnum.

„Þá er komið að því að styrkja liðið. Það hefur verið þessi þjóðsaga að það sé erfitt að fá Íslendinga til að koma til Vestmannaeyja, ég hef ekki fundið fyrir því síðan ég kom inní þetta allavega. Við erum búin að ná okkur í tvo núna og það er meira á leiðinni."

„Manni fannst áhugavert að fylgjast með framgöngu Alex hjá KR. Hann kom þarna inn og fór með himinskautum fyrst hjá KR eftir að hafa átt 2-3 frábær tímabil í Víkinni, lendir svo í meiðslum og var settur í Lengjudeildina í sumar og sýndi það í þeim leikjum sem hann spilaði að hann ætti alls ekki erindi þangað. Hann kemur með marga leiki á tanknum til okkar og á þeim aldri sem okkur vantar inní hópinn, með reynslu og annað, hann smellpassar í allt."

Tómas Þór spurði Daníel hvort liðið þurfi ekki leikmenn sem vinna í sjávarútvegi þar sem Eyjar hafa mikið af störfum uppá að bjóða í þeim efnum.

„Ég sagði við hann að við værum rosa spennt að fá hann, þá sagði hann; Já við vorum eitthvað að spá í að flytja útá land fjölskyldan." Þá spurði Daníel hvað hann væri lærður.„Ég er sjávarútvegsfræðingur." sagði Alex. Það small mjög vel.
Alex Freyr: Hefur blundað í mér að flytja út á land
Útvarpsþátturinn - Freysi, Eyjar og Emil Páls
Slapp
banner