Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 12:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Glódís Perla þakklát: Hin hliðin á peningnum gleymist oft
Eimskip
Glódís að árita bolta eftir opnu landsliðsæfinguna.
Glódís að árita bolta eftir opnu landsliðsæfinguna.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Margir komu á opnu æfinguna.
Margir komu á opnu æfinguna.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kíkt á fyrirmyndirnar.
Kíkt á fyrirmyndirnar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fagnað vel með Bayern.
Fagnað vel með Bayern.
Mynd: EPA
Af landsliðsæfingu.
Af landsliðsæfingu.
Mynd: KSÍ
Landsliðið snýr aftur á Laugardalsvöll.
Landsliðið snýr aftur á Laugardalsvöll.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum búin að nýta dagana í að undirbúa okkur fyrir þennan leik. Það er frábært að fá fleiri æfingar, við erum að koma úr mismunandi klúbbum með mismunandi áherslum og á mismunandi stað," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins, á fréttamannafundi í gær.

Í kvöld mætir liðið Úkraínu á Laugardalsvelli í undankeppni HM. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og í beinni útsendingu á RÚV. Bæði lið eru án stiga eftir fyrstu tvær umferðir riðilsins. Íslenska liðið hefur fengið óvenju mikinn tíma til undirbúnings fyrir leikinn.

„Það er frábært að fá fleiri æfingar til að komast aftur inn í landsliðsgírinn og inn í það sem við erum að gera hér. Við höfum nýtt æfingarnar, farið í mismunandi fókuspunkta á mismunandi æfingum. Við erum búin að ná að fara í gegnum allt og búnar að horfa á mikið af klippum."

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  0 Úkraína

Snúa aftur á Laugardalsvöll
Kvennalandsliðsliðið spilaði síðast á Laugardalsvelli í júní í fyrra. Hefur Glódís saknað þess að spila á þjóðarleikvangnum?

„Það er svolítið síðan seinast. Það er alltaf gaman að spila hér, fyrir framan okkar fólk á heimavelli og manni alltaf pínu aukaorku og hvatningu."

Hvernig líst þér á völlinn, heldur þú að hann muni hafa einhver áhrif í leiknum?

„Mér fannst hann fínn á æfingunni, völlurinn var blautur og boltinn rann val. Það er kannski ekkert mikið af grasi á honum, en boltinn rennur vel og það er alveg hægt að spila bolta á honum."

Markmiðið að fara á HM og leikirnir gegn Úkraínu lykilleikir
Hvernig líst þér á leikinn og mikilvægi hans?

„Ég er spennt fyrir leiknum, gaman að spila á heimavelli, gaman að spila fyrir framan okkar fólk og spila á móti Úkraínu. Þær eru með hörkulið. Þær eru mjög agressífar og það verður virkilega mikilvægt fyrir okkur að vera á tánum, vera klárar í þetta verkefni. Við þurfum að geta spilað vel út úr pressunni þegar þær stíga upp. Við erum að fara spila á móti virkilega góðu liði og við þurfum að vera klárar og eiga virkilega góðan leik."

„Það er gríðarlega mikilvægt að ná í sigur. Markmiðið er að komast á HM og það gefur okkur besta möguleikann á topp þremur að vinna leikinn. Við munum gefa allt í þennan leik, leikirnir gegn Úkraínu eru þeir leikir sem við vorum kannski búin að horfa í fyrir fram sem leikirnir sem við þyrftum að ná í stig."

Gefur leikmönnum fullt að sjá áhugann
Upp á stemninguna á vellinum að gera, hvernig metur Glódís hana eftir opnu æfinguna á laugardag?

„Ég vona að það verði góð stemning, það var frábært að svona margir komu, fylgdust með æfingunni og komu líka og hittu okkur hérna undir stúkunni (á Laugaralsvelli). Það var ótrúlega gaman að sjá hversu margir höfðu áhuga á að hitta okkur og sjá hvað við værum að gera. Ég vona að það verði eins (í kvöld). Ég held það sé spáð ágætu veðri og vonandi getum við gert þetta að góðum degi á Laugardalsvelli."

Það að komast í návígi við unga stuðningsfólkið ykkar, gefur þetta ykkur eitthvað?

„Algjörlega. Það er oft litið á þetta eins og við séum að gefa svaka mikið af okkur, en það gleymist oft að við erum að fá fullt út úr þessu líka. Það er ótrúlega gaman að sjá ungar fótboltastelpur, og stráka, koma hingað og vilja hitta okkur. Þau gefa okkur ótrúlega mikið bara með því að sýna okkur áhuga; vilja læra af okkur og sjá hvað við erum að gera. Það er frábært að sjá hversu miklar fyrirmyndir við sem lið erum orðnar. Það er frábært að geta gefið til baka og gefið í báðar áttir. Þetta nefnilega gefur okkur orku líka."

Skemmtilegra með boltann eða í vörn?
Ísland mætti Spáni og Englandi á útivelli í fyrstu leikjum riðilsins. Í þeim leikjum þurfti liðið mikið að verjast. Varnarmaðurinn Glódís var spurð hvort skemmtilegra væri að vera í yfirvinnu varnarlega eða þar sem liðið hennar heldur meira í boltann.

„Góð spurning. Það fer svolítið eftir því hvernig leikurinn er að spilast. Ég hef spilað leiki þar sem við höfum verið að verjast allan tímann og manni líður eins og maður sé með fulla stjórn, þá getur það verið ótrúlega skemmtilegt. Á móti, ef manni líður eins og maður sé ekki með stjórn allan tímann, þá er það ekki eins skemmtilegt. Ég held að þessi leikur verði blanda af báðu, við verðum kannski meira með boltann, en við þurfum líka að geta varist vel þegar þær koma ofar á völlinn. Skyndisóknir eru þeirra helsta vopn og við þurfum að geta varist því vel. Mér finnst aldrei leiðinlegt að vera með boltann, ég er meira vön því hjá mínu félagsliði."

Skoraði á Old Trafford og á möguleika á þrennunni
Glódís er nýbúin að skora á Old Trafford í Meistaradeildinni og Bayern er í séns á þrennunni með félagsliðinu. Geislar þú af sjálfstrausti akkúrat núna?

„Ég veit það ekki," sagði Glódís og hló. Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, sem var viðstaddur fundinn skaut þá inn í hvort Glódís geislaði ekki alltaf af sjálfstrausti. Glódís hélt svo áfram.

„Það er búið að ganga vel úti og við erum í frábærri stöðu eins og er. Við þurfum að vinn einn leik í viðbót til að vinna deildina. Við erum komnar í bikarúrslit og gengur vel í Meistaradeildinni. Við erum búnar að taka skref í Meistaradeildinni með því að komast inn í undanúrslitin sem við höfum beðið eftir lengi. Auðvitað langar mann þá að fara alla leið."

„Ég er mjög spennt að koma inn í landsliðið líka, þetta er allt öðruvísi umhverfi og það er gríðarlega gaman að koma hingað. Hér fær maður að gera svolítið aðra hluti en við gerum í Bayern hversdagslega. Það eru öðruvísi áherslur sem er gaman að fá að takast á við líka,"
sagði Glódís sem jafnar landsleikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í kvöld.

Bayern mætir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar og Wolfsburg í úrslitum bikarsins.
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    England 2 2 0 0 8 - 1 +7 6
2.    Spánn 2 2 0 0 6 - 1 +5 6
3.    Ísland 2 0 2 0 0 - 5 -5 0
4.    Úkraína 2 0 2 0 2 - 9 -7 0
Slapp
banner
banner