Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh
Benoný Breki: Hann er besti miðjumaðurinn í deildinni
Hugarburðarbolti GW 27 Tvö met slegin í Enska!
Kjaftæðið - Liverpool rændi stigum í Nottingham
Enski boltinn - Verða þau í mismunandi deildum á næsta tímabili?
Kjaftæðið - Slátrun í Boganum og allt sauð uppúr á Molineux
Fótbolta nördinn - Dr. Football vs Stjarnan
Enski boltinn í fyrsta sinn í mynd - Tudor tekur við Tottenham
Útvarpsþátturinn - Farið yfir sviðið með Eysteini
Hugarburðarbolti GW 26 Stærsta klúður tímabilsins ?
Kjaftæðið - Arsenal missteig sig og menn reknir
Kjaftæðið - Carrick kláraði Tottenham og Jökull Andrésson segir sögur
Hugarburðarbolti GW 25 Sló met í Fantasy leiknum !
banner
   lau 15. mars 2014 15:00
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Björn Berg framkvæmdastjóri KV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það gladdi marga þegar KSÍ veitti KV formlegt leyfi til að taka þátt í íslensku 1. deildinni á komandi tímabili.

KV fær þó líklega ekki að spila á KV Park, heimavelli sínum, vegna slakrar aðstöðu svo liðið mun líklega spila sína heimaleiki í Egilshöllinni.

Við duttum þá í smá spjall við Björn Berg, framkvæmdastjóra KV, sem var hress og lýsti dramatíkinni í aðdragandanum að ákvörðun KSÍ.

,,Það er vægast sagt undarlegt hvernig staðið er að þessu. Við byrjuðum umsóknarferli síðasta haust þar sem við vorum að vinna með leyfisstjóra sem var gott og er bara eðlilegt ferli," sagði Björn.

,,Ég veit til dæmis ekki, í dag, hvers vegna völlurinn er ekki löglegur. Það var farið yfir völlinn, hann mældur og skráður og allt saman í janúar og við fengum engin viðbrögð við því og höfum ekki ennþá fengið að heyra hvað hefði mátt gera betur.

,,Við vitum hvað þeir eru að setja útá. Við fengum aldrei tækifæri til þess að laga neitt eða gera neinar breytingar vegna þess að það var aldrei talað um að breytinga væri þörf.

,,Við fengum bara nei með gríðarlega stuttum fyrirvara og leituðum því til Egilshallar og fengum öll leyfi til að spila þar.

,,Það er langur tími í mót og hægt að skoða þessi mál aðeins frekar. Þetta er auðvitað eins og einhverjir hafa verið að benda á, ég held að allir okkar andstæðingar og stuðningsmenn þeirra vilji frekar mæta okkur á gervigrasinu heldur en í Egilshöllinni."

Athugasemdir
banner