Heimild: Boltinn Lýgur Ekki / Karfan.is
„Að verða atvinnumaður í körfubolta var ekki eitthvað sem ég ætlaði að verða fyrr en ég varð 17 ára, ég ætlaði að verða fótboltamaður," sagði Martin Hermannson, einn albesti körfuboltamaður þjóðarinnar, í hlaðvarpsþættinum Boltinn Lýgur Ekki.
Martin er í dag leikmaður Alba Berlin en er með lausan samning eftir tímabilið 2019/2020 og gæti því söðlað um og haldið annað. Martin var lunkinn í fótbolta.
„Ég var alltaf sóknarsinnaður miðjumaður en færðist svo aftar á miðjuna. Eftir að ég stækkaði meira var ég kominn í varnatengilið. Ég spilaði eiginlega allar stöður en miðjumaður lýsir mér best."
Martin er hávaxinn á fótboltamælikvarða en ekki þegar kemur að körfuboltanum. Yngri landsliðsþjálfarar sáu fram á að geta nýtt hæð Martins í vörninni.
„Ég fór í landsliðsúrtök og var allt í einu kominn í miðvörðinn þar. Þjálfararnir voru farnir að sjá mig þar. Eftir að það byrjaði að gerast nennti ég þessu ekki lengur."
„Ég vildi vera sóknarmegin eins og í körfunni."
Martin var efnilegur knattspyrnumaður en meðal annars var hann árið 2004 valinn í Shellmótsliðið í Vestmannaeyjum (úrvalslið mótsins).
Athugasemdir