Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
banner
   mið 15. ágúst 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Haukur Páll: Töluvert betra lið en liðið frá Andorra
Valur-Sheriff annað kvöld klukkan 19:00
Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði Vals.
Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur mætir Sheriff frá Moldavíu annað kvöld í síðari leik liðanna í 3. umferð Evrópudeildarinnar.

„Þeir eru tæknilega góðir og með öflugt lið og það eru klárlega möguleikar. Við förum í þennan leik til að komast áfram, það er 100%," sagði Haukur Páll við Fótbolta.net eftir æfingu Vals í hádeginu í dag.

„Við munum alltaf skapa okkur færi í þessum leik og spila agaðan varnarleik, það er lykill. Við þurfum að taka sénsana okkar þegar við fáum þá."

Valur vann FC Santa Coloma 3-0 í síðari leiknum á Hlíðarenda eftir 1-0 tap úti. Haukur segir að skýr gæðamunur sé á Santa Coloma og Sheriff.

„Þetta er töluvert betra lið en liðið frá Andorra en staðan er sú sama. Við þurfum að hugsa betur um varnarleikinn en á móti því liði. Við erum klárir í þennan leik og ætlum okkur áfram. Til þess erum við í þessu."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn
Athugasemdir
banner
banner
banner