De Bruyne og Grealish til Napoli? - Rodrygo og Frimpong til Liverpool - Al Hilal vill tvo frá Liverpool - Tveir orðaðir frá Newcastle
   fös 15. september 2023 20:50
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Ólafsvíkingar kláruðu tímabilið með stæl
Björn Axel endaði tímabilið með þrettán deildarmörk
Björn Axel endaði tímabilið með þrettán deildarmörk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ó. 4 - 1 KV
0-1 Askur Jóhannsson ('3 , Mark úr víti)
1-1 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('7 )
2-1 Björn Axel Guðjónsson ('27 )
3-1 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('58 )
4-1 Björn Axel Guðjónsson ('79 )
Rautt spjald: Jón Arnar Sigurðsson , KV ('61)

Víkingur Ólafsvík vann KV, 4-1, í síðustu umferð 2. deildar karla í kvöld.

Askur Jóhannsson kom KV, sem er fallið, yfir á 3. mínútu með marki úr víti en Abdelhadi KHalok El Bouzarrari jafnaði metin fjórum mínútum síðar.

Björn Axel Guðjónsson gerði tólfta deildarmark sitt á 27. mínútu áður en El Bouzarrari bætti við þriðja marki Víkinga. Þremur mínútum síðar fékk Jón Arnar Sigurðsson, leikmaður KV, að líta rauða spjaldið og nýttu Víkingar sér það.

Björn Axel skoraði fjórða og síðasta markið þegar ellefu mínútur voru eftir og kláraði hann því tímabilið með þrettán deildarmörk en hann er næst markahæstur í deildinni.

Víkingar eru í 4. sæti með 38 stig á meðan KV hafnar í neðsta sæti með 9 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner