Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
banner
   þri 16. júlí 2013 13:05
Elvar Geir Magnússon
EM kvenna - Siggi Raggi: Leikur sem alla dreymir um að spila
Kvenaboltinn
Stelpurnar okkar þurfa sigur á morgun gegn Hollandi til að eiga möguleika á að komast upp úr riðli sínum á Evrópumótinu. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Ragnar Eyjólfsson á hóteli landsliðsins í Växjö í hádeginu.

„Þetta er úrslitaleikur og ef við vinnum held ég að við förum pottþétt í 8-liða úrslit," sagði Sigurður Ragnar.

„Það er ótrúlega spennandi að fara í svona leik. Þetta er leikur sem alla dreymir um að spila í. Við erum að fara að mæta gríðarlega fljótu liði. Fremstu menn liðsins búa yfir miklum hraða. Við verðum að hafa góðar gætur á þeim."

„Þetta eru góðir einstaklingar sem eru að spila með toppliðum. Þetta er erfiður leikur en vonandi náum við að spila hann þannig að hann verði okkur í hag. Við teljum okkur eiga góða möguleika gegn þeim. Þetta er sterkt lið sem fór í undanúrslit á síðasta móti en er á svipuðum stað á heimslistanum."

Óvissa með miðjustöðurnar
Nokkuð er um meiðslavandræði í íslenska hópnum en liðið æfir í kvöld og þá kemur betur í ljós hverjar verða leikfærar. Siggi telur engar líkur á að Katrín Ómarsdóttir geti spilað og þá telur hann afar litlar líkur á að Guðný Björk Óðinsdóttir verði með.

„Það er mikið um meiðsli og slæmt að missa út þrjá miðjumenn í síðasta leik og Guðný Óðins meiddist á æfingu dagnn eftir. Það eru því fjórir tæpir miðjumenn fyrir leikinn og það er áhyggjuefni," sagði Sigurður Ragnar en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner