Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
   mán 16. september 2013 20:26
Hafliði Breiðfjörð
Atli Viðar skoraði tvö: Alltaf ósáttur við að vera á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
,,Mér fannst þetta lélegt, mér fannst við ólíkir sjálfum okkur og við getum prísað okkur sæla með eitt stig," sagði Atli Viðar Björnsson framherji FH eftir 3-3 jafntefli við Val í kvöld en afhverju er spilamennskan svona léleg hjá þetta góðu liði sem FH er?

Lestu um leikinn: FH 3 -  3 Valur

,,Virkilega góð spurning, ég held að við höfum ekki svar við henni eins og er. Við þurfum að líta okkur nær og taka okkur saman í andltinu. Við getum prísað okkur sæla með að ná að stela stigi í þessum leik miðað við frammistöðuna og hvernig þetta þróaðist."

Atli Viðar skoraði tvö mörk í kvöld eftir að hafa komið inná sem varamaður.

,,Það er hægt að brosa aðeins í gegnum tárin en á endanum er þetta bara eitt stig sem við fáum og þar af leiðandi er maður ekkert himinlifandi," sagði Atli Viðar sem er enn varamaður hjá FH þrátt fyrir að spila vel. Er han ekki ósáttur við það?

,,Ég er alltaf ósáttur við að sitja á bekknum, ég vil spila. Það er ekkert leyndarmál en maður heldur haus og bíður og vonar að maður fái séns í næsta leik," sagði Atli sem skoraði draumamark í síðasta leik gegn Fylki eftir að hafa komið inná sem varamaður.

,,Það skilaði mér ekki í liðið í dag, þá er að halda áfram og sjá hvað setur. Eina leiðin til að láta vita að ég sé ósáttur er að standa sig á æfingum og í leikjum og ég reyni að gera það."
Athugasemdir
banner
banner