Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   lau 17. maí 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Var Martínez að kveðja Villa Park? - „Það væri synd"
Mynd: EPA
Útlit er fyrir að Emi Martinez sé á förum frá Aston Villa en hann virtist kveðja stuðningsmenn liðsins eftir sigurinn gegn Tottenham í gær.

Martinez táraðist og veifaði til stuðningsmanna í stúkunni á Villa Park í leikslok.

„Stórkostlegur leikmaður, það væri synd, það lítur út fyrir að hann sé að kveðja," sagði Jamie Redknapp hjá Sky Sports.

„Hann getur verið svolítið pirrandi stundum. Þetta yrði mikill missir fyrir þá," sagði Roy Keane.

Martinez hefur verið orðaður við félög í Sádí-Arabíu. Unai Emery var spurður út í framtíð markmannsins eftir leikinn en hann gaf ekkert upp. Martinez er af mörgum talinn einn besti markvörður í heimi en hann hefur verið frábær með Aston Villa og þá varð hann heimsmeistari með argentíska landsliðinu árið 2022.

Emi Martinez waving to the Villa Park crowd with tears in his eyes after final home game of the season
byu/kibme37 insoccer

Athugasemdir
banner
banner