Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
   sun 06. júlí 2025 09:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Minnast Jota og Andre Silva fyrir leik Íslands og Sviss
Icelandair
EM KVK 2025
Diogo Jota lést í bílslysi á dögunum.
Diogo Jota lést í bílslysi á dögunum.
Mynd: EPA
Það verður minningarstund fyrir leik Íslands og Sviss á Evrópumóti kvenna í kvöld til að minnast Diogo Jota og bróður hans Andre Silva.

Þau hörmulegu tíðindi bárust á dögunum að Jota, sem lék með Liverpool og portúgalska landsliðinu, hefði látið lífið í bílslysi á Spáni. Hann var bara 28 ára gamall. Bróðir hans, sem var 25 ára, lést einnig í þessu hræðilega slysi.

Þetta eru fréttir sem slógu marga enda var Jota á hátindi fótboltaferils síns og nýbúinn að gifta sig. Hann lætur eftir sig þrjú ung börn.

Fótboltaheimurinn allur syrgir bræðurna sem voru bornir til grafar í gær. Jota var elskaður og dáður af liðsfélögum sínum, sem og af stuðningsmönnum Liverpool.

Leikur Íslands og Sviss hefst klukkan 19:00 í kvöld og fer fram í Bern í Sviss.
Athugasemdir
banner
banner