Brynjar Ingi Erluson skrifar frá Växjö
Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins, var enn í sigurvímu er Fótbolti.net tók viðtal við hana í Växjö í dag.
Ísland komst í gær í 8-liða úrslit Evrópumótsins og braut um leið blað í sögu landsliðsins, en Guðbjörg segir að stelpurnar séu enn að ná sér niður á jörðina eftir sigurinn á Hollendingum.
,,Við erum ekki alveg komnar á jörðina, það var erfitt að sofna í gær og adrenalínið var á fullu og púlsinn hærri eins og gengur og gerist. Við erum komnar aðeins lægra, en ætli við þurfum ekki að taka þennan dag líka til að koma okkur alveg niður á jörðina," sagði Guðbjörg.
,,Við fáum að vita í kvöld hver verður andstæðingurinn og þá byrjum við að stúdera þann andstæðing. Við þekkjum bæði lið mjög vel og bæði lið eru hrikalega sterk lið, þannig skiptir ekki svo miklu máli hvort liðið það verður."
,,Þetta var stærsti dagur sem maður hefur upplifað á ferlinum hingað til, komnar í 8-liða úrslit í Evrópukeppni. Þetta er stærsta íþrótt í heimi og þetta er ólýsanlegt. Þetta er yndisleg tilfinning, maður hefur fengið margar kveðjur ekkert bara frá Íslandi, frá Svíum og Norðmönnum og fleira fólki sem maður þekkir."
,,Svíarnir eru alltaf að segja við mig að allt Ísland sé minna en Gautaborg liggur við og eins og að Gautaborg sé komið í 8-liða úrslit. Facebookið mitt er búið að vera rjúkandi síðan í gær, ég er mjög hrærð og þakklát fyrir allar þessar kveðjur, mér þykir mjög vænt um það og þetta er bara ótrúlega gaman."
,,Inboxið er búið að vera óvenju vinsælt og gaman að fólk taki eftir frammistöðu manns. Ég sjálf hef ekki fengið símtöl, en ég er með umboðsmann sem er aðeins farinn að heyra í mér, en ég er samningsbundin Avaldsnes út þetta season en er ekkert að spá í því núna."
,,Það var einmitt þýskt lið sem heyrði í mér eftir leikinn á móti Þýskalandi, en ég er ekkert að spá í því núna."
,,Bæði lið eru hrikalega sterk og meta svipaða möguleika á að vinna þau, en ég held að upplifunin að mæta Svíum gæti verið ógleymanlegt, uppselt á leikinn og allt vitlaust á vellinum, það gæti verið leikur sem maður á eftir að muna eftir alla ævi," sagði hún ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























