Franski bikarinn er í fullu fjöri og mættu ríkjandi meistarar PSG til leiks í kvöld.
Þeir unnu þægilegan sigur gegn utandeildarliði Fontenay þar sem Désiré Doué og Ousmane Dembélé skoruðu mörkin í fyrri hálfleik áður en Goncalo Ramos setti tvennu í þeim síðari.
Lokatölur urðu 0-4 og fer PSG áfram í næstu umferð.
Paris FC, Nancy, Sochaux og Toulouse eru einnig meðal félaga sem unnu leiki sína í kvöld.
Fontenay 0 - 4 PSG
0-1 Desire Doue ('25)
0-2 Ousmane Dembele ('34, víti)
0-3 Goncalo Ramos ('53)
0-4 Goncalo Ramos ('58)
Bethune 2 - 4 Sochaux
Grenoble 1 - 1 Nancy
Nancy vann eftir vítaspyrnukeppni
La Duchere 1 - 2 Toulouse
Pontivy 0 - 1 Bastia
Raon L'Etape 0 - 3 Paris FC
SA Merignac 0 - 0 Istres
Istres vann eftir vítaspyrnukeppni
Athugasemdir




