Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
banner
   sun 21. apríl 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Man Utd á Wembley og fjórir leikir í deildinni
Man Utd mætir Coventry í undanúrslit bikarsins
Man Utd mætir Coventry í undanúrslit bikarsins
Mynd: Getty Images
Liverpool heimsækir Fulham
Liverpool heimsækir Fulham
Mynd: Getty Images
Manchester United mætir Coventry City í undanúrslitum enska bikarsins á Wembley í dag og þá fara fjórir leikir fram í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Man Utd á erfiðan leik fyrir höndum. Liðið vann Liverpool í 8-liða úrslitum en það getur oft verið snúið að spila gegn liðum í neðri deildum.

Coventry er í 8. sæti B-deildarinnar og í baráttu um að komast í umspil á meðan United heldur í veika von um að komast í Meistaradeild á næstu leiktíð.

Leikurinn hefst klukkan 14:30.

Fjórir leikir eru þá í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Everton tekur á móti Nottingham Forest á Goodison Park klukkan 12:30. Everton og Forest eru hlið við hlið á töflunni en Everton er í 16. sæti með 27 stig á meðan Forest er með 26 stig í 17. sæti.

Deildin hefur dregið stig af báðum liðum vegna brota á fjárhagsreglum.

Aston Villa mætir Bournemouth á Villa-Park. Villa er í 4. sæti sem stendur með 63 stig, þremur meira en Tottenham sem er í 5. sæti, en Tottenham á leik til góða. Það er því pressa á Villa að vinna þá leiki sem eftir eru.

Crystal Palace mætir West Ham áður en Fulham tekur á móti Liverpool. Lærisveinar Jürgen Klopp eru að ganga í gegnum erfiðan kafla. Það datt úr leik í Evrópudeildinni á dögunum og er sem stendur í 3. sæti með 71 stig, tveimur stigum frá toppliði Manchester City.

Leikir dagsins:

ENGLAND: Premier League
12:30 Everton - Nott. Forest
14:00 Aston Villa - Bournemouth
14:00 Crystal Palace - West Ham
15:30 Fulham - Liverpool

ENGLAND: FA Cup
14:30 Coventry - Man Utd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Ipswich Town 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leicester 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Southampton 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Luton 38 6 8 24 52 85 -33 26
19 Burnley 38 5 9 24 41 78 -37 24
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Sheffield Utd 38 3 7 28 35 104 -69 16
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner