Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. maí 2023 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeild kvenna: Selma Dögg skoraði tvö í sigri Víkings
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 4 - 1 FHL
1-0 Birta Birgisdóttir ('10 )
2-0 Selma Dögg Björgvinsdóttir ('24 , Mark úr víti)
2-1 Sofia Gisella Lewis ('48 )
3-1 Selma Dögg Björgvinsdóttir ('55 )
4-1 Sigdís Eva Bárðardóttir ('90 )

Víkingur R. náði í fjórða sigur sinn í Lengjudeild kvenna er liðið vann Fjarðabyggð/Hött/Leikni 4-1 á Víkingsvellinum í dag.

Selma Dögg Björgvinsdóttir skoraði tvívegis fyrir Víking í leiknum en það var Birta Birgisdóttir sem opnaði leikinn strax á 10, mínútu. Selma tvöfaldaði forystuna með marki úr víti á 24. mínútu áður en Sofia Gisella Lewis minnkaði muninn á 48. mínútu.

Selma Dögg gerði annað mark sitt sjö mínútum síðar áður en Sigdís Eva Bárðardóttir gerði út um leikinn undir lokin.

Víkingur er með fullt hús stiga í efsta sæti deildarinnar eftir fjóra leiki en FHL með aðeins 3 stig úr fjórum leikjum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner