Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. maí 2023 23:05
Brynjar Ingi Erluson
PSG einu stigi frá titlinum - Mbappe skoraði bæði
Mynd: EPA
Kylian Mbappe skoraði bæði mörk Paris Saint-Germain í 2-1 sigri á Auxerre í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld og er liðið nú einu stigi frá því að taka titilinn.

Mbappe skoraði tvö mörk á tveimur mínútum. Fyrra markið var snoturt en hann lék sér með boltann í teig Auxerre áður en hann skilaði boltanum í hægra hornið.

Annað markið var ekkert slor heldur. Lionel Messi lagði boltann út á Mbappe sem þrumaði boltanum í hægra hornið fyrir utan teig. Hann er markahæstur í deildinni með 28 mörk, tveimur meira en Alexandre Lacazette, framherji Lyon.

Auxerre náði að koma sér aftur inn í leikinn með marki á 51. mínútu og þá skoraði Mbappe boltanum í netið í þriðja sinn en það var dæmt af vegna rangstöðu.

PSG fór með sigur af hólmi og er með sex stiga forystu á toppnum þegar tveir leikir eru eftir. Liðið er með töluvert betri markatölu en Lens sem er í öðru sæti. PSG þarf aðeins eitt stig til að tryggja titilinn
Athugasemdir
banner
banner
banner